ég held að ég hafi vanist of góðu úti í danmörku hvað svefn varðar. fyrstu vikurnar þar var ég reyndar mjög dugleg, það sást jafnvel til mín kl. 9 á morgnana, kannski úti í garði, að lesa lexíurnar mínar. svo fór að kólna og dimma og ég varð þreyttari, svaf þá oftast til hádegis og rembdist svo við að læra eftir hádegi. á íslandi er kalt og dimmt... ergo: ég er mjööög þreytt. ég tók t.d. baunann á daginn í dag, átti að mæta kl. 13 í skólann en svaf yfir mig! geri aðrir betur! ég er sem sagt búin að vera heima hjá mér í dag, vera kalt og reyna að læra... en danskt.
ég strengdi ekki neitt áramótaheit þetta árið. má gera það svona soldið eftir á? alla vega, ef það má þá ætla ég að strengja þess heit að mæta alltaf í skólann í réttum tíma, eða næstum því alltaf að minnsta kosti... heit þurfa jú að vera raunsæ. úú já, og að vera dugleg í skólanum, en það eru bara fastir liðir eins og venjulega, e-ð sem ég segi fyrir hverja skólaönn :-S
þetta með strætóferðina góðu úr breiðholtinu... rúnar, ég er ekki að ýkja! tók 111 niður í mjódd, skipti þar og tók sexuna niður í hr. málið er að sexan keyrði þvílíkar krókaleiðir, ég var þarna á rúnti um hverfi sem ég vissi ekki að væru til! hálftími, þenkjú verrí næs.
annars er ég að fara að elda fisk í fyrsta skiptið í kvöld, alveg sjálf. ég eldaði fullt í danmörku, en aldrei elduðum við fisk. ég er búin að taka loforð af öllum á heimilinu... það er bannað að geifla sig og gretta, bannað að skila eða leifa og bannað að elda sér e-ð annað sökum brags/óbrags matarins. annars er þetta e.k. ofnréttur með tómötum (ömmmm), papriku og alls kyns, svo er kotasælusósa með... hmmmm... ég hef sko aldrei smakkað þetta áður, fann þetta í e-rri matreiðslubók.
pjúffff... ég er nú meiri kellingin, sei sei.