föstudagur, júní 28, 2002

jájá...
á kannski ekki alveg við mig, en samt gott að vera the perfect girlfriend... jájájá...




you're but I'm a cheerleader. you're colorful and silly and very romantic, just like the perfect girlfriend.


heiða verður nú að fara að hætta þessu...

ekkert mál herdís mín :-)
sjæse, hvað er málið? og þetta á að vera hávísindalegt... ræææt...

It all adds up...
You are definitely a man!

hvaða kyn ert þú?
heheheheh...
mér finnst ég bara vera nokkuð kúl sko... hehe.


Sjáðu hvaða týpa þú ert
vá kónhed könnun!









könnun #3









á ég að fara á skóga 2002?
já, að sjálfsögðu! það ætla allir!
jájá, alveg eins...
fylgdu hjarta þínu.
nei, það er allt of dýrt.
gæti ekki verið meira sama.

Current Results
Create a FREE Alxnet Web Poll

ég er í bobba...
mig langar að fara í skógaútileguna sem verður um næstu helgi, var næstum búin að ákveða í gær fara. fór svo og hitti krúið mitt í gærkvöldi, og voru gellurnar í miklu skynsemiskasti og töluðu um hve dýrt þetta væri allt saman og bla bla bla... ég fékk samviskubit og hætti eiginlega við að fara. svo er ég búin að heyra frá öðrum sem ætla að fara og ég því orðin spennt aftur. ég á svo erfitt með ákvarðanatökur og bið því um hjálp...
hann á ammæl'í dag, hann á ammæl'í dag, hann á afmmæl'ann rúnar, hann á ammæl'í dag. jeeeeeeeeiiiiiii...
til hamingju með ammælið rúnar!

fimmtudagur, júní 27, 2002

ég er sko í vinnunni núna og það er ekkert að gera og mér leiðist og það nennir enginn að tala við mig og tíminn líður ekki neitt og mig langar að fara að koma mér til hennar þorbjargar. stebbi sagði mér að finna mér e-ð uppbyggilegt að gera, t.d. að blóta á þýsku... ok... dönn ðat! en fann eina ansi hreint skemmtilega síðu. þetta er rooosaaaleeegaaa sniðugt og getur komið sér mjööög vel. sveittur serbi reynir að káfa á þér, þú hrækir í augað á honum og segir "Govno yedno" -> "You piece of shit!" -> "kúkalabbinn þinn!". kátur kínverji bíður þér út að borða, þú hugsar þig vel um og segir svo "ow lun dun jhew hai" -> "ox cock boiled in a pig's cunt" -> "uxatyppi soðið í svínskuntu"... hmmm... brjálaður arabi sem ber nafnið muhammed býður þér í flugferð, þú tekur túrbaninn af honum og pissar í hann og segir "Elif air ab dinich!" -> "A thousand dicks in your religion!" -> "þúsund typpi í trú þinni!". súr súrinami biður um sandala, þú segir "bos mie baanaa" -> "kiss my dick!" -> "kysstu typpi mitt!", þ.e. ef þú ert með typpi. og eitt hollenskt diss að lokum "je moeder!" -> "your momma!" -> "mamma þín!".
jæja, allir að læra að blóta á útlensku á how do i swear in foreign languages.
þetta væri kannski góður þráður á spjallinu... "kaffi".
ég drekk eiginlega ekki kaffi. jú, í gær drakk ég kaffi, írskt kaffi, æris koffí. það þótti mér gott. einu sinni reyndi ég líka að vera költ og drakk latte... sem ég er! þ.e. væri... ef ég væri kaffi.

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

hehehe... og annað nokkuð gott hér. hvernig á að blóta á þýsku. nú ætla ég ekki að gera annað en að tok dörtí á þýsku... scheisskerl! verpiss dich! og e-ð sem mig hefur alltaf dreymt um að segja: der höhepunkt der fete war der gruppenfick danach. hehehehe... fyrir þá sem ekki finna þetta á slanglinknum eða skilja ekki þýsku get ég mælt með "orðabókinni" á http://babelfish.altavista.com.
tíhíhíhíhíhí...
alveg hægt að skemmta sér yfir þessu, queer slang in the gay 90's... hehehhe...
ég ætlaði að skrifa um jónsmessuhátíðina sem ég fór á á eyrarbakka á laugardaginn, en sá þá hve góð skil rúnar gerði henni á síðunni sinni. kíkið á það, en þetta var hin mesta skemmtan. ýmislegt skemmtilegt sem gerist á svona djammi, sem er svo mjög ólíkt djömmum hér í bænum. t.d. það að dansa vikivaka í fjörunni með öllum þorpsbúum í kringum brennu, að enda fyrir utan rauða húsið eftir lokun með snjólaugu, gúddí og auði mömmuvinkonum að syngja skátalög og það að kýla oddvitann óvart í smettið í brjáluðum danssnúningi með ella ívars. held að það hafi allir gaman að svona skemmtan. rúnar og stebbi borgarbörn skemmtu sér m.a.s. frábærlega. en eins og rúnar segir frá á heimasíðu sinni, þá fór hann ekki heim fyrr en kl. 8 um morguninn, og það var sko löngu eftir að við öll fórum heim. jájájá, rúnar þarf alltaf að vera síðastur heim...
nú er minns sko þreyttur... ég og stebbi fórum upp í sumarbústað til mömmu og pabba í gær og keyrðum í vinnuna kl. 8 í morgun. það væri svo sem alltílæi nema það að þar var til bjór og hvítvín... jújú, sem við drukkum. eftir mikla og glæsilega kanaspilamennsku uppgötvuðum við að klukkan var orðin 2. fórum þá að sofa. venjulegt fólk höndlar kannski svona lítinn svefn... en ekki ég! úffffff... ég er ekkert smá sjoppuleg...

miðvikudagur, júní 26, 2002

jei... ólöf heimsótti mig í vinnuna áðan og við tókum einn rúnt í kringlunni. ég hjálpaði henni að kaupa... soldið sem má ekki skrifa hér, og peysu handa mér. hún er gul eins og sólin :-)
vegna "fjölda áskorana" er hér linkur á það sem eldað var í sumarbústaðnum um helgina... þetta var geeeðveikt gott.
man... það eru allir í ísbúðinni farnir að sjá við íshöstlinu mínu. heyrir til undantekinga ef höstlið tekst... :-(
hætt að versla við þessa sjoppu... eða..
ég er nú meiri ofurkonan. enn einn myndaskammturinn kominn á vefinn... hér. þær eru úr matarboði sem ég hélt fyrir vini, 8. júní (?!?)... held ég. mættir voru: ég, stebbi, þorbjörg, jón, herdís, kristín, barði, hallur, ingó. mamma og pabbi kíktu svo í restina, rétt áður en við fórum í bæinn. stebbi, ég og herdís (minnst ég samt) elduðum geðveikt gott spaghettí með brauði og drukkum hvítvín með.
laugardagsmyndir varmalandsferðarinnar komnar hér. sumar eru ansi vafasamir, fólk að kyssa hina og þessa... sei sei...

þriðjudagur, júní 25, 2002

fékk skondið sms:

BEGIN:VCALENDAR
VERSION:1.0
BEGIN:VEVEN
TCATEGORIES:MISCELLANEOUS
SUMMARY:Reminder
DTSTART:20410712T010400
END:VEVEN

frá númerinu 823-6418 sem er óskráð, hver er fyndinn eða frík?
hei... fyrsti myndaskammtur varmalandsferðarinnar frægu er kominn á vefinn.
hægt er að skoða hann hér.
jeeeeeeee...
takk hildur :-)

mánudagur, júní 24, 2002

nýkomin úr enn einni útilegunni, sumarbústaðaferð á sparistaði sem er í landi syðri-brúar sem er í grennd við ljósafoss... jamm. þórhildur, ágústa, herdís, þorbjörg (engin mynd :-( ) , jón, ólöf (engin mynd :-( ) og rúnar komu í heimsókn á föstudagskvöldið og við grilluðum... besta mat heims, jájá. grilluðum kjúklingabringur með spæsí brazillían sósu, aldrei smakkað neitt þessu líkt, bara brilliant. grilluðum líka brauð, sveppi fyllta gráðaosti og grænmeti á teini... öömmmm, er að slefa á lyklaborðið. svo spiluðum við actionary fram eftir öllu, fyrirliðinn ágústa var svo full að hún klúðraði næstum sigri liðs síns... :-s

föstudagur, júní 21, 2002

stebbi vildi endilega fá að sjá myndir af sér...
ef þið skoðið þessa og þessa mjög hratt til skiptis þá sjáið þið svona hreyfimynd... heheheh...
og þessi sýnir jón og kristínu í góðu gríni með gellunum og ofurskutlunum tveim...
þær skemmtu sér konunglega með okkur, sögðu að okkar partí væri miklu skemmtilegra en þeirra :-) kúl!!!
ég held að þessi mynd sé ein af þeim fyndnustu á filmunni. eiríkur már í hláturskasti yfir ekki-svo-mjög-fallegu-konunni sem hann faðmar svo þétt... hahahahah
hún kom sko bara óboðin.
sjitt... var að sækja fyrstu filmu af þremur úr útilegunni góðu... fólk er ekki fallegt í útileg :-(

fimmtudagur, júní 20, 2002

ótrúlegt!!! ég sit hér við tölvuna mína að "vinna" og það er sápukúla að svífa hérna!!! önbílívabúl. kannski tákn, hver veit ???? "þú ert mjög hrein... kúla"
la la laaaaaaaa...
keypti kjúlla og með því áðan fyrir grillið á morgun... ömmmmm...
matarboð í sumarbústað á morgun, bjór og gleði. hlakka rosa til. fann drykkjuleikjabók sem ég er að rembast við að lesa og læra, tek hana með, jájá.
fyndin þessi mannanafnanefnd. það er greinilega nóg að gera hjá þeim, funda ca. einu sinni í mánuði og skoða þá fullt af nöfnum, samþykkja og hafna. margt af þessum nöfnum er algjör brandari sko.
eins og þessi sem hefur sótt um nafnið Dimmblá, hlýtur að vera skáknörd sem sótti um þetta, samt fallegt nafn, jájá. það var samþykkt.
þetta finnst mér mjög skrítið, heiðaringi. ég meina, akkuru ekki bara að skíra tveimur nöfnum, heiðar og ingi? ég bara spyr. þessu var hafnað.
hérna eru svo nokkur sem voru...
...samþykkt:
axelma, engill, mekkin, bangaly (hahahahha), Magnes
...hafnað:
járnsíða, Tryggvason, Örn (kvk), Arnapála, Sólimann

ómægot... leiðinlegt að heita járnsíða!

jamm og jæja... svona getur fólk verið klikkað


hahahahaha... þetta á mjög vel við mig... leiðinlegt!

I am



Find out which Garbage Pail Kid you are!

til hamingju með ammælið í gær þórhildur pæja ;-}

miðvikudagur, júní 19, 2002

sá the strokes í jay leno í gærkvöldi. djúlían kasablankas er með mjaðmir! ekki bara mjaðmir heldur mjaðmir, MJAÐMIR!!! það er sko ekki kúl þegar strákar eru með svoleiðis mjaðmir... neineinei...
var að labba í kringlunni áðan með ísinn minn (held ég sé komin með e-ja sýki, íssýki) og hitti stelpu sem ég þekki bara svona rétt mátulega og stoppaði og spjallaði aðeins við hana. það var ekkert smá skrítið, allan tímann sem við töluðum saman þá blikkaði hún aldrei augunum. halló! það þurfa allir að blikka augunum. mér þótti þetta frekar óþægilegt og um leið mjög fyndið. geðveikt fyndið að þurfa ekki að blikka augunum, með ógislega uppþornuð augu, hahahah...

þriðjudagur, júní 18, 2002

tók fullt fullt af myndum, kannski koma þær hingað inn.
annars gleymdi ég filmunum heima, ætlaði að framkalla í dag... seinkar sem sagt e-ð.
en ég náði sko nokkrum góðum, skúbbi og allt... híhíhíhíhíhí...
útilegan... stærsta útihátíð sumarsins hingað til??? ábyggilega. staðarvalsmeistarar ferðarinn (ég og herdís) stefndu 25 manns á varmaland um helgina. ætli við höfum ekki verið um 20 manns á staðnum á föstudagskvöldinu, drukkum, sungum, drukkum, spiluðum fótbolta og frisbí, drukkum, fórum í tveggjamannakollhnísa, drukkum og grilluðum, geeikt!!! á laugardeginum gerðum við þessa típísku útileguhluti... eða.. við horfðum á england - danmörk í baulu, fórum í sund og frisbí.
svo gerðist e-ð yfirnáttúrlegt, kraftaverk! ég lagði mig eftir sundið í dágóða stund og þegar ég vaknaði hafði það gerst. þegar ég steig út úr tjaldinu höfðu fullt fullt af nýjum tjöldum bæst við tjaldbúðina okkar ásamt fullt fullt af nýju fólki, sem ég þekkti ekki einu sinni allt!!! þetta var hið ótrúlegasta fólk. og af hverju var það þarna? jú, það þekkti mann sem þekkti mann sem þekkti konu sem var ein af okkur, eða e-ð svoleiðis. mjög fyndið. um kvöldið var slegið upp brekkusöng, en allur hópurinn rölti uppí brekku sem var þarna fyrir ofan, með eins og 3 gítara og spilara og gommu söngbóka, og svo var bara partí langt fram á nótt. við töldum 70 manns í brekkunni!!! þetta átti sko bara að vera útilegan okkar, en þetta var bara bónus!!! ég hitti m.a. 3 unga drengi sem voru með mér í 3ja bekk í mr! ótrúlegt...
útilegan var sem sagt hreinasta snilld, fyrir utan það að ég brann meira en allt! en rautt verður brúnt, ég er sannfærð um það!
msn drasl...
komin með nýjan account... rutsigurdardottir@hotmail.com

föstudagur, júní 14, 2002

farin á barmaland!!!
jeeeeeeeee!!!
bæjó
man... það hefur komist upp um íshöstlið mitt!
fór áðan og keypti ís á sama stað og venjulega en var afgreidd af afgreiðslumanni sem ég hef ekki beitt íshöstlinu á áður, greinilega mjög fær og þrælæfður ísmaður. ég bað um þetta venjulega, lítinn ís í boxi með jarðaberjasósu og þrist, en í stóru boxi, júsí... getiði hva... maðurinn gerði minnsta ís veraldar í þetta stóra box, setti svo sósuna og þristinn útá og rukkaði mig svo 80 kr. aukalega fyrir nammið!!! viljiði spá!!! ég þarf sko aldrei að borga fyrir nammið, stundum 30 kr. reyndar, en ekki 80 kr.!!! ég var svo spæld... borgaði allt of mikið, fyrir allt of lítið... er sko vön að fá allt of mikið, fyrir allt of lítið... bömmer.
versla sko ekki aftur við þennan dreng...
maðurinn er óstöðvandi!!!
ekki nóg með það að hann er nýbúinn að senda frá sér ljóðabálk, heldur fylgir hann því eftir með stórmynd!
já, margir kunna að spyrja sig: "hver er þessi maður?"
...gull af manni...
takk jón :-)
skoða myndina "Ást í leynum".
úffffffffffff... úffffffffffffff... úffffffffffff
jón var að senda frá sér kviðling í tilefni útilegunnar... ég er í hláturskasti!!!
ekkert smá inspererandi vinna sem hann er í... hahaha... kípitöpp :-)


Útileguhugleiðing

Ég bruna eftir þjóðveginum og horfi á fjöllin skjótast mér hjá líkt og spjót sem Einar Vilhjálmsson hefur hent á Ólympíuleikunum 1988.

Ég stíg út úr bílnum og finn angan af landi varma. Ég legg saman tvo og tvo og fæ út Varmaland.
Það er ákvörðunarstaðurinn.

Ég sé grösugar hlíðar og grónar sléttur.
Hér skulum vér vera, hér vil ég ávallt vera.

Fögur er hlíðin heyri ég bergmála innan fjallasalarins. Er þetta nokkuð langbrókin aldraða að hrópa? Hver veit.

Það er kominn aftann, ég sit fyrir aftan bálköstinn og læt mína fögru tóna leika um hlustir hnokkanna og hnátanna.

Hnokkarnir og hnáturnar andast sökum ófögurs óms.

Drykkjan hefst.

Ölvun heltekur mannskapinn sem ebola-veira og einn fellur af öðrum.

Þynnka hefst og landsleikur nálgast óðfluga, líkt og óð fluga. Undo heyrist.

Landsleikur búinn og fagnandi áhangendur flykkjast um tjaldsvæðið líkt og blaðlýs í ballarhafi.

Drykkja hefst á ný og ómþýður söngur Jóns tælir landann líkt og Sírenurnar í fornöld.

Leikjameistarinn fer á stjá og setur útileguleikana 2002.

Allir fara í leiki, bjórhlaupið er vinsælt en verður mörgum að fjörtjóni, ekki þó Jóni sem ber sigur úr býtum.

Dauði.

Þynnka hefst á ný og matur snæddur af áfergju sem hungursneyð hafi geisað í sýslunni síðustu misseri. Allir svangir.

Allir halda heim á leið.
jeeeee... fyrsta myndin hefur borist mér, en það er hún védís sem bjó til ljósbláu myndina súmóhöstl.
kíkið!
óska eftir fleiri myndum...
heiða segir að það verði ekki farið í þórsmörk fyrstu helgina í júlí, heldur skóga. var e-ð búin að heyra af þessu, en þá er það staðfest. loksins þegar ég ætlaði að fara í þórsmörk þá er það bara lagt af, skrítið. hef sko aldrei farið. spurning hvort ég fari þá bara á skóga, pæling. ætla að bera þetta undir nefnd. en ég er alla vega að fara í útilega eftir vinnu, tveggja nátta, á varmalandi. er orðin mjöööög spennt.

fimmtudagur, júní 13, 2002

bjó til aðra. þið verðið að afsaka hversu óþroskuð ég er að finnast svona fyndið.
persónur myndarinnar eiga sér enga fyrirmynd í raunveruleikanum, þetta er allt saman skáldskapur...
skoðið myndina.
smá prívjú..
tjekkit.
frekar leim... en ég var samt í hláturskasti yfir þessu sko. takið vel eftir gaurnum og hvernig hann setur alltaf stút á munninn, ekkert smá sexí... hahahah...
hei... heví sniðugt. fyrir þá sem leiðist í vinnunni, þá er ég hérna með verkefni:

fara á þessa síðu velja start og búa til "bíómynd".
tilvalið myndefni er t.d. útilegan um helgina... jájá. skemmtilegt væri svo að fá slóðina senda í pósti fyrir okkur öll að skoða.
jeeeeee...
það eru 50 dagar í þjóðhátíð. jeeeiiii...
úps... uppljóstraði skátaleyndarmálinu mínu :-S
undirbúningur útilegunnar góðu um helgina stendur nú sem hæst. staðarvalsmeistararnir (ég og herdís) ákváðum að farið skyldi á varmaland sem er í grennd við borgarnes, en þar er allt sem þarf til þess að leggja grunninn að góðri útilegu. ég bjó til tjekklista í morgun fyrir okkur stebba og sendi honum. sottlu seinna fékk ég hann sendan til baka, breyttan og bættan. ég var sko í hláturskasti þegar ég las hann. það sem hann hafði m.a. bætt við var vasaljós, vasahnífur, kaðall, c vítamín og parkódín!!! það mætti halda að hann væri skáti, en ekki ég.
úfffff... ég held að það sé 63 stiga hiti á skrifstofunni minni.
er samt með viftu sem blæs "köldu" á mig, en það hefur sína kosti og galla. kosturinn er að sjálfsögðu sá að mér er ekki eins ógislega heitt (hmmm... smart), en gallinn er sá að þegar hún blæs á mig og kælir þá blæs hún svo mikið í augun á mér, sem er ekki gott svona til lengdar. þið vitið, eins og þegar e-r heldur augunum á ykkur galopnum og blæs ógislega mikið í þau... frekar óþægilegt, jájá.
en ég er samt frekar kúl... svona með-vindinn-í-hárinu-pæja... tíhíhíhí...
...lagterta, skinkuhorn, vínarbrauð og e-r sultukaka.
jújú, fínt bara.
jeeeiii... nammidagur í vinnunni í dag.
alla fimmtudaga fáum við alltaf e-ð bakarísgott í morgunkaffi í stað brauðs með osti og grænmeti alla aðra daga.
ég eeeelska fimmtudagsmorgunkaffi því ég er svo mikið bakarísbarn.

miðvikudagur, júní 12, 2002

ég, hildur og sindri vorum öll á austurvelli í hádeginu í dag. skrítið að við hittumst ekki.
eða sko ég og hildur, eða ég og sindri. kannski "hittust" hildur og sindri, hahahah, held þau þekkist samt ekki.
úfffff, óhollt að sitja inni í góðu veðri svona lengi. tölvubrúnka er ekki einu sinni kúl...
rúnar er byrjaður að blogga, allir að fylgjast með því.
var að lesa hjá honum, hann var e-ð að tala um hita og svita... spennandi :-)
keypti þessar fínu nærbuxur (tvennar sko) og vesku áðan.
nú er ég svo aldeilis glöð í hjarta mér :-)
ómægot... ég er ekkert smá sorgleg.
að höstla ís af litlu ísfólki.
sjitt, ég er íshöstler!
undo á íshöstlið :þ
hei... fór áðan og keypti mér ís, eins og ég er reyndar búin að gera á hverjum degi í marga daga. jæja. ég er búin að finna geeikt sniðuga leið til að fá meiri ís, heldur en maður á í raun að fá. ég bið sko alltaf um lítinn ís í boxi með jarðaberjasósu og þrist, en læt ekki þar við sitja, heldur bið um að ísinn verði settur í stærra box en samt hafður bara lítill. "ekkert mál!" segja ískonurnar alltaf, en það er sko ekki ekkert mál. þeim er það öllum ómögulegt að gera lítinn ís í svona stórt box, þannig að ég fæ alltaf stóran ís með öllu tilheyrandi á verði lítils... hahahahaha... jeeeeeeee.
það nennti nottla enginn með mér í sund í hádeginu, þ.a. að ég skellti mér í bæinn... ein.
fyrir okkur innivinnandi fólk þá var það ekkert skemmtilegt. það var vont veður, rigning og læti, enginn á ferð, allar ísbúðir lokaðar og gaddavírsflækja (eða e-ð svona drasl) sem fauk á austurvelli...
nauts!!! það var geðveikt! ógislega mikil sól og hiti, fullt af fólki á austurvelli að borða ís, drekka kaffi, bjór, hugleiða, já, það voru sko kínverjar að gera svona æfingar, þið vitið.
það ætti að loka skrifstofum borgarinnar á svona dögum... algjörlega!
er e-r til í að taka langan hádegismat með mér og fara í sund í laugardalslauginni? plííííís...

þriðjudagur, júní 11, 2002

þar sem john john er ekki kominn með heimasíðu verður þetta vettvangur skáldskapar hans í bili.
fékk þessa stöku senda frá honum, en yrkisefnið er hin árlega og stórsniðuga útilegukeppni. stakan er svona:

Lítið hlass af litlu oltið
lævís skal sú heppni.
Í ár nú vér æðum til
hinnar árlegu útilegukeppni.

Written by John John

(say what John John!!)
hahahahahah...

það er komin gríðarskemmtilegur spjallþráður um þessa útilegukeppni, en þar má m.a. finna keppnisgreinar mótsins.
hrafnhildur litla systir mín er 16 ára í dag.
til hamingju með daginn elsku besta hrafnhildur mín :-)
steinar, litli bróðir stebba, byrjaði í unglingavinnunni í gær og var að segja mér frá fyrsta degi sínum. hann sagði farir sínar sko ekki sléttar. hópurinn hans fór á e-n leikskóla í breiðholtinu þar sem átti að gera fínt. krakkarnir á leikskólanum voru nú ekki mjög vinsamlegir, og lögðu steinar í einelti. þeir tóku verkfærin hans, kölluðu hann piss og sögðu að hann borðaði pelamat... man, ég var í hláturskasti, geðveikt leiðinlegt að vera piss! hahahaha.
við hlynur erum eins með þetta líka. ótrúlega lík, enda frábært fólk!


Which Piercing are you?

vei... ég og hlynur erum sama súpermódelið. en við erum að minnsta kosti beib.


~Find Your Inner Supermodel~

fann þetta hjá betu.
alltaf gaman að svona prófum, nema það að ég er gík... ömó að vera gík...





Take the What High School
Stereotype Are You?
quiz, by Angel.

mánudagur, júní 10, 2002

talandi um svona ógislegt... það er ógislegt að drekka hreinan appelsínusafa þegar maður er nýbúinn að tannbursta sig.
rækjusalat og heitt kakó... frekar mikill vibbi.
mjólk og kokteilsósa, er það ógeð? ég borða það sko oft.
svo er nottla laukur... eitur.
ojjjjj... ég er nú meiri lúðinn. var að borða heilan örbylgjupopppoka (æ nó, er orðin alveg rosaleg í poppinu) af rosa rosa feitu poppi. eftir það var ég með svona feiti uppi í mér, uppi í gómnum, þúveist, sem er sko ekki gott. fékk mér þess vegna ískalt vatnsglas... :-( ekkert smá vitlaus! nú er ég með fullan munninn af svona storknaðri feiti sem ég er ekkert að fara að losna við... ojjjjjj!!! líður ekki vel.
rúnar er hættur að heimsækja heimasíðuna mína... er það e-ð sem ég sagði eða gerði???
rúnar koddu aftur!
makedónar eru sko algjörir dónar!
fór á leikinn í gær, og þar sem höllin var troðfull og hvergi sæti að fá settist ég í tröppur við hliðina á dónunum. þeir vildu standa allan tímann meðan leikurinn var og vera þá fyrir öllum hinum sem sátu. þetta var þeim að sjálfsögðu ekki leyft. þeir trylltust allveg, réðust næstum því á saklausa starfsmanninn og einn dóninn sparkaði plastflösku e-t lengst, mjög fast sko. þeir voru sko alveg snar. ég var reyndar í hláturskasti þegar einn dóninn kveikti sér í sígarettu í miðjum leik. þótti það frekar fyndið, en svona er þetta víst hjá þeim þarna úti. engir mannasiðir...
brilliant matarboð á laugardaginn! ætlaði sko að bjóða mínum ástkæru vinum í spaghettí, en mætingin ætlaði ekki að verða 100% vegna útskriftarveislu og útálandferðum. en það voru nokkur eðalmenni sem mættu (þorbjörg, jón, kristín, herdís), og fyrir hina sem mættu ekki, buðum við (ég og stebbi) þeim ingó, halli og barða í staðinn. það var eldað 317 kíló af spaghettí og 98 bagettur... geðveikt gott!!! það voru sko allir í góðum gír, og allir vinir... nema barði og ingó, en það var víst e-ð grín... hmmmm. spiladrykkjuleikurinn er algjör snilld!
klukkan tólf átti hallur svo ammæli, til hamingju hallur. stuttu eftir það fórum við í bæinn, beint á vídalín, þar sem gullfoss og geysir voru að spila. þeir eru æði! ég fer að gerast grúppía hjá þeim, eru sko alveg að meika það hjá mér. það versta var hitinn þarna inni, sjitt, ábyggilega 57 gráður á selsíus og nákvæmlega engin loftræsting.
ölvun hóps míns var ógurleg...
helv... msn. það er úti, búið að vera síðan á föstudaginn. ég er alveg ómöguleg án þess...

föstudagur, júní 07, 2002

var að skoða teljarann minn...
rúnar, þú ert minn helsti gestur! skoðar síðuna oftar en allir aðrir, þar með talið ég. frábært!
takk rúnar, þú ert æði! kípitöpp...
jeminn... halldór hauksson er algjör meistari. ég er í hláturskasti að hlusta á hann.
fannst hann reyndar fyrst vera frekar leiðó, en menómen...hann er meistari.
jeeeeiiiii... ótrúlegt!
þeir sem þekkja mig vel vita að hún er í uppáhaldi hjá mér, mér finnst hún svo sæt. og viti menn!



You are Drew
Barrymore
!

You acted in cool movies like:


Charlie's Angels, Never Been Kissed, The Wedding Singer,


Scream, Poison Ivy and E.T.


Take the "Which Hollywood Princess are you?"
quiz @ planetag.de


heiða prófaóða... eins og ég reyndar... :-)

fimmtudagur, júní 06, 2002

jeeeee... eða...


Hvaða tímabil ert þú?

jæja, alveg að verða búin að vinna. er sko búin að vera að vinna síðan klukkan 9 morgun og klukkan er núna að verða 9 að kveldi. já, fjör á fimmtudögum, í allt sumar. fer beint á holtsgötuna að hitta krúið, það er víst búið að eyrnamerkja mér kassa með e-ju sem ég á, gaman að sjá hvað það er, vonandi e-ð skemmtilegt. þær eru sko að fara að flytja um helgina. svo ætlum við líka að plana útilegu sem verður um næstu helgi, sautjándajúníhelgina, eða það held ég. annars verður þetta svona síðasta stundin á holtsgötunni. leiðinlegt. ætla samt að reyna að plata fólkið í smá geim á laugardag. tóta... peningar, smeningar...
já nú er ég glöð.
horfði á opnunarleik hm óruglaðan á skrifstofunni minni um daginn. hef svo verið að reyna að fylgjast með þessu, nema hvað að sýn hefur verið rugluð síðan þá. heyrðu, svo kíkti bara e-r verðbréfamiðlari í heimsókn til mín og stillti e-ð, og viti menn... ég er aftur komin með sýn, jeeeeeeee.
vá, ég er í hláturskasti. þríraddaður meistari jakob á radíó x... :-)
rambaði inn á síðuna hennar heiðu og sá þetta skemmtilega próf sem heitir "what's your mental age?". bara gaman að því... öllu nema niðurstöðunni! ég sem hélt ég væri svo þroskuð, en ekki 4 árum eftir á...

18

I act like I'm 18.



taka prófið.

miðvikudagur, júní 05, 2002

man... ég held að jón sé bara í e-ju móki í vinnunni.
sjáiði hvað hann skrifar á spjallið um heiladingul sinn:


Þakka stuðninginn en skammhlaupið kom sem elding í heilahvel mitt og sá ég fortíðarminningarnar flögra sem norðurljós á næturhimni gegnum huga minn. Ég sit hér einmana við tölvuskjáinn og horfi á rafeindirnar stingast gegnum augnbotna mína líkt og Zorro sjálfur væri að munda sverðið gegn hertoganum af Kantaraborg. Ég læt hugann reika og vonast eftir svari frá yfirmanni heilasellnafélags Jóns en fæ ekkert svar.
Hvar eruð þið sellur?
Fæ ekkert svar.


Tómið fyllir huga minn og ég bíð eftir sprengingu. Búmm. Búmm. Búmm.

Það varð sprenging.

Heilasellurnar hafa lýst yfir ábyrgð á sprengjutilræðinu.

Hvergi mun maður óhultur vera.

ég er sko í hláturskasti yfir þessu...
tók áskorun í gær, körfuboltaáskorun. en hún hildur var með e-r læti á spjallinu þar sem hún sagði að þau systkinin (hildur og stebbi) myndu flengja makaliðið (mig og ými). það er skemmst frá því að segja að makaliðið vann systkinaliðið í tvígang... jeeee. annars voru önnur úrslit þannig að yngri kynslóðin (ég og stebbi) vann ellismellina (hildi og ými) í tvígang og strákarnir (stebbi og ýmir) unnu stelpurnar (mig og hildi) í tvígang, tæpt þó (eða næstum)... annars eru aðrar fréttir þær að ýmir er OF stór...

þriðjudagur, júní 04, 2002

ragnheiður ásta er farin að blogga aftur, var í e-i pásu.
svo eru sumir "vinir mínir á vefnum" sem láta lítið heyra í sér... hint, hint, slísa, hlynur, stebbi...
gaman að segja frá því að það er kominn nýr spjallari á spjall rutar, en það er hann jónas. ég vil bara þakka honum fyrir sitt innlegg :-) erum öll rosa forvitin að vita hver maðurinn er.
við erum sko svo fá sem erum að spjalla, aðeins ég, jón, rúnar og herdís, skemmtum okkur samt vel. en við tökum öllum sem þarna koma með opnum örmum, kaffi og kleinum.
ég er búin með cocoa puffs pakkann sem ég keypti á miðvikudaginn... ég er sem sagt búin að stúta heilum pakka á 5 dögum! ómægot! er hægt að fá cocoa puffs eitrun? nei, getur varla verið. annars er mér farið að líða e-ð undarlega...
(note to self: ekki borða svona mikið cocoa puffs.)
vegna gríðarlegra vinsælda og metþátttöku í survivor-skoðanakönnuninni (hahahahah...) þá er ég hérna komin með aðra fyrir áhugasama. þar sem ég er orðin svo mikil sundkona þá er hún um sundlaugar á íslandi.... veeeeiiiiii. vá, ég verð einfaldlega skemmtilegri og skemmtilegri...
endilega allir að taka könnun.
ég er voða mikið að hanga í vinnunni núna, terminal server clientinn er e-ð ekki að rokka, þ.a. ef þið getið mögulega mælt með e-ri vefsíðu sem er góð afþreying þá plííííís sendið mér póst
ég er orðin svo mikil heilsufrík að það hálfa væri nóg. fór í gær eftir vinnu í körfubolta með stebba og komst að því að ég er MJÖG tapsár. eftir mikil átök í körfunni fórum við í sund, eða reyndar bara í heita pottinn, jamm sund. stefnan er sett á annað eins í dag eftir vinnu. úffff, þetta er rosalegt. ég er líka með krónískar harðsperrur...

mánudagur, júní 03, 2002

man... það var brjáluð sól í morgun og alveg heiðskýrt. nú er ekkert sérstakt veður. ég sem ætlaði í sólbað í hádeginu... damn!
áiiii... ég er að andast vegna harðsperra. þær eru alls staðar, en þó aðallega í rassinum. heví mikið mál að fara á klósettið. er að reyna að minnka klósettferðir því það er svo vont að setjast á það, reynir svo á rassinn, jú sí.
ég, stebbi og hallur fórum í gærkvöldi fyrst í körfubolta, svo semífótbolta og svo að hjóla. sjaldan verið jafndugleg, og geld fyrir það núna (að gjalda, ekki að gelda). það er ekkert smá erfitt að hjóla. hvaða kjáni sagði líka að maður gleymdi aldrei hvernig ætti að hjóla? ég var að hjóla í fyrsta skipti síðan ég var 13 ára og það var ekkert smá erfitt. fórum í e-n kjána þrautakóng, á hjólunum sko, þar sem átti að skransa og prjóna og svoleiðis, það er bara ekki hægt! ég þurfti að nota alla mína einbeitingu í að halda mér á hjólinu. var skíthrædd um að detta, gat sko ekki verið með hjálm því það er ekki kúl. ég mátti því vinsamlegast skrá mig úr þessum þrautakóng því ég sökkaði :-(