jæjajæjajæja...
það er búið að vera roooooosalega mikið að gera.
hvar á ég að byrja?
fimmtudagurinn fyrir viku:
ok... ingó kom í mat til okkar og við elduðum spæsí-brazilían-kjúklingaréttinn okkar fræga. bragðlaukarnir í stebba dóu akkúrat þegar hann var að lava sósuna (leiðinlegt), og e-ð varð þess valdandi að hann gat ekki hætt að setja tjillí í hana. sósan var mjög góð sko, en við áttum í mestu vandræðum með að borða hana þar sem við breyttumst öll í pamelu á svipstundu, varirnar á okkur urðu svo þrútnar af öllu þessu tjillí. minna tjillí næst. þetta bjargaðist nú allt saman þar sem við áttum nægan bjór til þess að drekka með. eftir matinn blönduðum við hvítan rússa, alveg fullt af honum! ingó leist ágætlega á íbúðina okkar held ég, en það sem honum fannst mest til koma var maturinn sem við áttum. "hva... bara uncle ben's! það er ekkert verið að spara. iiiiiiiii, og heinz tómatsósa! það eru aldeilis flottheitin!" jújú, ekkert smá snobbuð mar... hehehe. þeir kaupa held ég aldrei það besta, mér skilst að reglan þar sér "alltaf það næstbesta". tæt butsjett... jess jess. eftir tjillíát og rússadrykkju þá héldum við á stereobar og hittum þar habbý, hildi og evu, stelpur sem ingó þekkir. það var alveg brill, dönsuðum sem aldrei fyrr. við erum alveg á leiðinni að dánlóda dj-sessjoninu hennar dj nönnu. mest kúl daninn sem við höfum séð. stelpurnar buðu okkur svo í innflutningspartí sem var á laugardaginn... hressar þessar stelpur.
laugardagurinn fyrir viku:
ingó bauð okkur í pizzu... hann bakar sko botninn sjálfur og allt! skoluðum henni niður með öl og viti menn, hvítur rússi í desert. fórum svo í innflutningspartí hjá stelpunum. partíið var mjög alþjóðlegt og mjög skemmtilegt. það var mikið um sérstaka karaktera, og var ég oft á tíðum í hláturskasti. fólk getur verið með svo fyndið hár!!! jájá. ingó var e-ð tregur til að fara heim, því eins og hann sagði sjálfur svo vel "jeg bor alene i et stort spögelsehus og der er store lodne edderkopper der!" held að hann hafi samt hætt sér heim fyrir rest. hann lenti víst í e-rri kóngulóarkrísu og hann hræðist drauga. seisei. gott kvöld, hittum vonandi stelpurnar oftar.
mánudagurinn:
fórum á sigur rósar tónleika ásamt kananum mike. alveg merkilegt... ef þú ert í útlöndum og vilt hitta íslendinga... farðu á sigur rósar tónleika! ég heyrði íslensku alls staðar, það var a.m.k. fifftí-fifftí. eins og einn góður íslendingur sagði "þetta er bara eins og á þorrablóti hérna!". jújú, alveg satt. en sigur rós klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. mér finnst alltaf endirinn skemmtilegastur, þessi flotti sigur rósar endir... það er rosalegt uplevelse... engin smá gæsahúð. en strákarnir voru bara sætir eins og alltaf, og það er alltaf eins og þeir séu jafnhissa á þessari frægð sem þeir hafa... mér finnst það alltaf svo skemmtilegt. ég fór að spá á tónleikunum... hvað er málið eiginlega með það að fara alltaf í hljómsveitarbolum, eða frekar svona tónleikabolum á tónleika? það þarf sko ekkert að vera bolur með hljómsveitinni sem þú ert að hlusta á... neinei... bara e-rri hljómsveit. alveg fyndið. ein kona var í rem-bol frá því á e-jum green túr sem þeir fóru víst í e-n tímann '95 eða e-ð. það var alveg fullt af svona fólki. ok... "fyrst ég er á tónleikum, best að sýna það að ég hafi farið á tónleika áður". a ha... einmitt. ég var nú bara í hláturskasti yfir þessu. alltílæ. en við fórum sátt af tónleikunum. nýr diskur skilst mér í næsta mánuði... eða hvað? allir að fá sér hann.
vikan:
búin að vera frekar strembin. brjáluð verkefnavinna... mjög löng seta við tölvuna... mikil þreyta. ég verðlaunaði mig því með því að fara ásamt stibba á bjórtennismót í gær.
föstudagur:
fórum á bjórtennismót á vegum íslendingafélagsins í dtu. ok... vissi ekki nákvæmlega hvað þetta var, nema það að þar yrði drukkinn bjór. svo er það bara klukkutíma fyrir brottför að stibbi segir mér að skella mér í borðtennisgallann... "við erum að fara að spila borðtennis.". jæjajæja... þetta hafði ég ekki hugmynd um. ég var sem sagt að fara að keppa á borðtennismóti og drekka bjór... alltíeinu! "seisei" hugsaði ég með mér fyrst, en vá! þvílík snilldarhugmynd... bjórtennismót! með því fyndnara sem ég hef tekið þátt í. ég var að vísu rosa léleg, hef aldrei spilað borðtennis, tapaði því mínum riðli. en ég heyrði því fleygt að ég hafi verið í mjöööööög sterkum riðli, hvort sem það var satt eða ekki. að venju er ég vægast sagt tapsár, en ég held að bjórinn hafi aðeins mýkt mig og ég fann næstum ekki fyrir tapsæri. góður bjórinn ha! eftir mótið héldum við á dtu-barinn þar sem var læf músík, e-ð brjálað diskóband að spila... enn og aftur, ég í hláturskasti! jeminnjeminn. þetta var hin mesta skemmtan. frábært kvöld þetta.
í dag:
ég fattaði það að það eru rúmar 2 vikur þangað til ég fer heim og ég er (nær) ekkert búin að versla síðan ég kom hingað. hei! best að eyða erlendu kreditkortaheimildinni minni! jájá, við fórum niður í bæ og versluðum. ég er nú buxum, skóm (supplæs supplæs), trefli og sokkum ríkari. stebbi tveimur skyrtum. rákumst svo á jón og stebba jóns... iiiii, eins og þeir séu hjón eða feðgar eða e-ð... horfðum á arsenal-blackburn og fengum okkur svo feitan kfc. núna erum við í hinu mesta letikasti, ætlum inn á eldhús og horfa á mr. deeds eða the big lebowski og borða rittersport... það er b.t.w. alltaf á svona pakkatilboði hérna í danmörku. stebbi er alltaf að gera grín að mömmu sinni að ef e-ð er á tilboði þá kaupir hún það alltaf... ég meina, mamma mín líka, og bara allar mömmur held ég... en málið er að stebbi er alveg nákvæmlega eins, tilboðssjúkur! heheheh.
við tókum myndir á fimmtudag, laugardag, mánudag og í gær. þær koma inn bráðum, eða þegar við nennum. tjá.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim