ég fór út að skokka í morgun... já ég veit, rosa dugleg. maður verður bara að fara að passa sig, ég heyrði því nefnilega fleygt að bjór væri fitandi... hmmmm. alla vega, skokkið... ég fer niður að rosa stóru vatni, bagsværdsö held ég að það heiti, og skokka e-ð meðfram því. fyrst þarf maður að labba í gegnum mjög spúkí skóg... mjög svona hans-og-grétu-legur skógur og svo er maður eiginlega bara að skokka í honum á svona stíg, voða ævintýralegt. en þegar ég var að verða búin með túrinn minn þá sá ég allt í einu frosk!!! jájá, bara rétt fyrir framan mig! í hægðum sínum rabbit-aði hann bara yfir stíginn... ég skokkaði næstum því á hann! brá ekkert smá. var skíthrædd það sem eftir var, var viss um að næst myndi ég skokka á einn, sem væri ekki skemmtilegt, hætti skokkinu því fljótlega. en þá þurfti ég að labba aftur í gegnum skóginn til þess að komast til baka. um daginn þegar ég og stebbi löbbuðum þarna þá hljóp íkorni beint fyrir framan okkur... "helledusseda" segi ég nú bara... aðeins of mikið af væld-læf fyrir minn smekk, þenkjú verrí næs. alla vega... ég var orðin svo ímyndunarveik eftir næstum-froska-áreksturinn að ég var viss um að það væri allt krögt í íkornum þarna. sá fyrir mér að lenda í svona national-lapoons-christmas-vacation-dæmi þegar íkorninn stökk framan í chevy chase, sem mér þótti alveg endalaust fyndið þá, en ekkert svo mjög að lenda í. alla vega... ég komst heil heim, gaman að segja frá því (",) ekki það að ég sé e-ð hrædd við svona dýr, held það sé bara hræðsla við að fá þau á e-n hátt í andlitið... hehehe... soldið asnalegt ég veit, en það væri bara rosa leiðinlegt að fá svona dýr í andlitið. ég myndi a.m.k. fá taugaáfall. akkuru er ég samt að spá í soleiðis? well well...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim