föstudagur, ágúst 30, 2002

er að borða... ein. stebbi fór í e-n lokapartímat í dtu, mér er víst boðið eftir hann. á boðstólnum í dag hjá mér er pasta með rauðri sósu... jú og kál, við keyptum nebblega e-n sterakálhaus um daginn, hann má ekki skemmast. þrátt fyrir að hafa farið á fætur mjög seint, eða um hádegi, þá finnst mér ég vera búin að gera alveg fullt. ég byrjaði á því að fara niður í þvottahús... hmmm... í fyrsta skiptið eftir vikudvöl. alla vega, það er þvottahús í kjallaranum með þvottavélum og þurrkurum og fyrir hvern þvott, þvottaefni og þurrk þarftu að borga með korti sem maður kaupir á bensínstöðinni. ég var eins og algjör illi þegar ég kom þarna niður. ég byrjaði á því að standa með öll skítugu fötin okkar og horfa á hitt fólkið sem var ýmist að setja í þvottavél eða þurrkara til að reyna að læra. en þau voru öll greinilega mjög vön þ.a. mér tókst ekki að nema neitt með þessu áhorfi. þá var bara að prófa sjálf. það tókst ágætlega þangað til ég þurfti í helv... kortavélina. þá var það bara að reyna dönskuna sína... "undskyld, kan du sige mig hvordan jeg skal bruge kortemaskinen, dette er min förste gang her og..." roðni roðn. danska stelpan hjálpaði mér, talaði og talaði, alveg á ógnarhraða, og ég hafði þar með sett í mína fyrstu dönsku þvottavél... jei!! þegar hún var búin færði ég þvottinn okkar í þurrkara og átti gott mót við kortemaskinen í þetta skipti þótti mér, fór svo upp í íbúð. þegar ég kom niður aftur soldið seinna þá var búið að setja minn þvott í körfu úti á miðju gólfi, allur blautur ennþá, og e-s annars þvottur kominn í vélina... öhhhh! þá er sjálfgefið í kortemaskinen 15 mínútur eða e-ð, ég hefði sem sagt þurft að panta 2 eða 3 sinnum það. þ.a. núna er ég að tjilla með blautan þvott allt um kring sem hangir uppi til þerris... jei!

úfffffffffff... ég er rosa leiðinleg... leiðinleg þvottasaga!

alla vega...
það er ekkert lát á góða veðrinu hér. fór út áðan á stuttbuxum og hlýrabol með bók að lesa og það var algjör steik, meikaði ekki meira en korter, fór þá inn. vil samt ekkert vera að kvarta neitt, sól er betra en rok og rigning ;-) eftir áframhaldandi lestur hér inni fór ég í sturtu og eldaði svo kvöldmat... dúleg, ha?

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim