pæja!
ómægot... er ég pæja, eða er ég pæja? ég var að flytja mig um set í vinnunni, er búin að vera á flakki, fékk að vera við skrifborð þeirra sem voru í fríi í það og það skipti. núna er ég komin með mitt eigið borð, og... mína eigin skrifstofu! jújú, skrifstofu með stórum stórum hornglugga og frábæru útsýni (er á 7. hæð). hérna sit ég við risastóra borðið mitt, við tölvuna mína, með símann minn (er ekki ennþá búin að komast að því hvaða símanúmer ég er með, en jæja), með stóra ofursjónvarpið (þetta er sko brjálað ofursjónvarp) og (ótengda) skannann minn. þetta er ekkert smá kúl, nema það að ég er strand í verkefninu mínu...
"Either BOF or EOF is True, or the current record has been deleted. Requested operation requires a current record."
...ef e-r veit hvað er í gangi þá endilega sendið mér póst.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim