djö...
hef ekki enn fengið einkunn fyrir lokaverkefnið, fer á einkunnasíðuna á hálftíma fresti, en aldrei neitt. það er mjög gaman í vinnunni. ég er jú ennþá að vinna hjá s24, fæ nú að spreita mig í tölvugeiranum, smá tilbreyting frá viðskiptaþjónustunni. fékk strax verkefni, en það var að gera verkstjórnunarkerfi. bjó til gagnagrunn og vefsíðu sem vinnur á honum þar sem eru skráð inn verkefni sem þarf að gera og allar þær upplýsingar sem fylgja. svo er hægt að sækja verkefni í þennan grunn til að leysa og svo framvegis. þannig er haldið utan um þau verkefni sem þarf að gera, eru búin og svoleiðis. jájá, ég veit... mér finnst þetta a.m.k. kúl.
það er plönuð rosa grillveisla á laugardaginn hjá vinahópnum mínum. ætlum að grilla kjúklingabringur og humar, ummmmm... og við ætlum að drekka bjór, ummmmm... ég hlakka ekkert smá til. það eru boðaðir tveir nýliðar, en þeir eru sævar alabamamaður, en hann á heima, getiði hvar, í alabama, og spilar körfubolta. svo er það maðurinn hennar tótu sem kemur ef til vill. ég er alla vegana að reyna að fá hana til þess að bjóða honum, hann er sko nýr... tíhí. það væri nú skemmtilegt að senda henni póst og kvetja hann til þess að koma með kallinn :-)


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim