föstudagur, maí 07, 2010

fisherman's wife


fisherman's wife
Originally uploaded by rutsig
lítil foto-saga frá íslandi um jólin. hrafnhildur dífði tánum í þessa heitu laug á seltjarnarnesinu fyrir mig. fleiri á flickr-inu. takk dúllan mín!

þriðjudagur, apríl 20, 2010

This blog has moved


This blog is now located at http://blog.rutsigurdardottir.com/.
You will be automatically redirected in 30 seconds, or you may click here.

For feed subscribers, please update your feed subscriptions to
http://blog.rutsigurdardottir.com/feeds/posts/default.

...frá amsterdam

stebbi eyddi helginni í amsterdam í hópi dónakalla frá kaupmannahöfn. úr þessari dónakallaferð færði stebbi mér svooo fallega hluti, ég er alveg í skýjunum. æðislega falleg hollensk tímarit sem ég er sjúk í... foam og blend, get ekki hætt að fletta þeim... mjög inspirerandi.

og síðast en ekki síst kom hann með stroopwaffels, sem er mitt nýja uppáhalds! þunnt vöfflukex með bestu karamellu sem ég hef smakkað.! held að amsterdam hafi bara orðið pínu uppáhalds eftir þessa strákaferð, þó ég hafi ekki verið sú sem heimsótti. kannski fæ ég að skjótast þangað næst... fletta hollenskum tímaritum, borða stroopwaffels og mingla við erwin olaf...

já pant!

fimmtudagur, apríl 15, 2010

today i changed...


today i changed...
Originally uploaded by rutsig

fyrsta sessjón af þremur búið...

þriðjudagur, mars 16, 2010

norrænir guðir - portrett sería
í vetur byrjaði ég að vinna að nýrri ljósmyndaseríu, portrett seríu af norrænum guðum. ég vildi þó aðeins brjóta þetta upp og ákvað að fá konur til þess að pósa sem karl-guðirnir... og með því spyrja hvort kyn skipti yfir höfuð máli, og hvort vegi þyngra kyn eða status.

ég hef lokið við tvö portrett... fékk þórhildi til þess að vera þór, og huldu rós til að vera óðin. stelpurnar stóðu sig svo hrikalega vel í tökunum, stórt respekt fyrir hugrekki og módelfærni. ég fékk líka hund til liðs við mig, hana shani, sem var alveg frábær. mikill lærdómur í svona dýramyndatöku. þooooolinmææææðiiiii...

þór er með hamarinn sinn, járnglófa og megingjörð.
óðinn er að gefa úlfunum sínum að borða, drekka vín og bíða frétt frá hröfnunum sínum.

mér þykir þetta svo ótrúlega skemmtilegt og krefjandi verkefni að það eru nú þegar fleiri portrett í undirbúningi.

e-r þarna úti sem vill sitja fyrir sem guð???
látið mig endilega vita...

norse gods portraits - Thor norse gods portraits - Odin

þriðjudagur, mars 09, 2010

sagan um hundinn

...sem vildi ekki fara heim

ég var sjö ára :)

laugardagur, mars 06, 2010

F.C. Gundlach
ég fór í vikunni með rebekku vinkonu í gropius bau að skoða ljósmyndasýningu þýska tískuljósmyndarans f.c. gundlach. gundlach var mjög heitur tískuljósmyndari í þýskalandi á 6., 7. og 8. áratugnum, ljósmyndaði mikið fyrir þýsku tímaritin film und frau og brigitte. við skemmtum okkur mjög vel á sýningunni, bæði yfir fallegum myndum og fallegum fötum þessa gamla tíma. skemmtilegt að sjá hvernig margt hefur breyst frá þessum tíma. það var allt svo ferlega elegant hérna í denn, á meðan í dag er miklu meira leyfilegt, allt frá elegans til trassí. konurnar hans gundlach voru mjög gjarnan með hatta, hanska og héldu á blómum... e-ð sem ég ætla að fara að gera meira af, þó ekki væri nema bara til þess að lyfta sér eilítið upp í amstri dagsins...



þriðjudagur, mars 02, 2010

mamiya c220



Originally uploaded by rutsig

nokkrar mamiyu myndir frá íslandi á flickr-inu.
núna er ég byrjuð að leika mér með canon ae1 filmuvél.

það var rosa mikill spenningur í mallanum um daginn þegar ég sótti filmu í framköllun... eins og í gamla daga. ég hef alveg lúmskt gaman að þessu filmudóti. það er svo skemmtileg tilfinning sem maður fær við að taka á filmu... spenningur, tilhlökkun... kom e-ð yfir höfuð á filmuna? veit það ekki fyrr en í næstu viku þegar ég sæki hana úr framköllun! maður lærir líka að vanda sig meira við hvert skot, það finnst mér hollt og gott.